Þessi þáttur er kannski nokkuð óhefðbundinn fyrir 4.vaktina en þó sáum við þessa umræða gagnast okkar hlustendahópi.
Við viljum byrja á að taka það fram að það er talað um sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir í þessum þætti. Umræðan endurspeglar ekki allt sem kemur að þessu málefni. Ef þú ert að upplifa sjálfsvígshugsanir þá mælum við alltaf með að leita aðstoðar. Sem aðstandendi er hægt að leita sér ráðgjafar hjá félagasamtökum eins og Píeta og fleiri stöðum.
Í þessum þætti erum við að tala um ákveðna aðferðafræði og nálgun og skal taka það fram að sú nálgun á ekki við í öllu meðferðarstarfi eða þegar farið er til fagaðila.
Við bendum á að sem dæmi er hægt að leita til:
-Bráða móttöku Geðdeildar Landspítala
-Píeta samtökin
-Hjálparsíma Rauða Krossins 1717
Við kynntumst henni Nínu Eck á málþingi Umhyggju árið 2025 sem bar nafnið Fjórða vaktin og þar var hún með fræðslu um jafningastuðning. Við í 4.vaktinni höfum talað mikið með kostum jafningastuðnings og hafa félagasamtök á borð við Umhyggju, Sjónarhól, ADHD samtökin, Einhverfusamtökin og mun fleiri boðið upp á slíkan stuðning fyrir fötluð /langveik börn og fjölskyldur þeirra.
Þannig okkur fannst vel við hæfi að fræðast um hvað það er að vera jafningi og hvað jafningastuðningur sé í raun.
Þessi þáttur er mjög dýrmætur þar sem þær gefa okkur innsýn í sína geðheilsu, upplifanir og líf ásamt því að fræða okkur um hvað jafningastuðningur er og hvernig námið fer fram.
Við fengum Nínu Eck ásamt Ástu Guðrúnardóttir til okkar en þær starfa báðar á Geðdeild Landspítalans. Þær eiga það sameiginlegt að hafa báðar reynslu af geðheilbrigðiskerfinu sem notendur.
Nína Eck var greind með jaðarpersónuleikaröskun þegar hún var 24 ára eftir að hafa upplifað sjálfsvígshugsanir frá því hún var 11 ára. Hún upplifði jaðarsetningu og fordóma á eigin skinni og veit hversu erfitt það er að byggja sér heilbrigt og gefandi líf þegar myrkrið er tíður gestur. Sem hluti af hennar endurhæfingu heillaðist hún af mannúðlegri og dómlausri nálgun félagsráðgjafa og útskrifaðist sem slíkur 2024. Nína vann sem jafningi í Geðþjónustu LSH meðfram náminu og öðlaðist leiðbeinandaréttindi í Intentional Peer Support jafningjanámskeiði 2023.
Nína vill leggja réttindabaráttu geðveikra lið með því að innleiða jafningjastuðning á þann hátt að hann stuðli að pólítískri frelsun, inngildingu og hlýju í garð þeirra sem hafa fengið geðgreiningar.
Ásta Guðrúnardóttir upplifði það sem skilgreint er sem geðrof fyrst árið 2012.
Hún sér þetta sem skilgreiningu á andlegri uppljómun sem orsakaðist á skorti á raunverulegum tengslum. Þó manneskja sé umvafin fólki þá skiptir máli að það sé frelsi fyrir alla, samkennd og engin þöggun. Eftir mörg ár af bara venjulegu lífi, vann sem hljóðmaður að döbba teiknimyndir sat í henni að deila heilun sinni með öðrum. Hún rakst þá á starfsauglýsingu fyrir jafningja á Landspítala og hefur starfað í hlutastarfi þar undanfarin ár. Árið 2025 kláraði hún nám hjá Yale í bandaríkjunum sem kallast “Lets lead” og er leiðtoganám fyrir fólk með lifaða reynslu.
Þó að kannski ekki væri hægt að greina hana með neitt í dag og hún þarf engin lyf hefur hún einsett sér að halda þessum félagslega stimpli þar til fordómar hætta að hindra fólk í bata og taka kjark frá þeim.
Þessi þáttur er í boði:
-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild:
godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117
Mobility Aid:
Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu . Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is
Childs Farm
Í Childs Farm eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.
Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.
Sölustaðir:
Hagkaup, Krónan, Fjarðarkaup og apótekum um land allt.