Við fengum Unni Kristínu Óladóttir til okkar en hún hefur verið mjög opin á samfélagsmiðlinum Instagram, þar deilir hún frá lífinu sínu og sýnir og segir frá á einlægan hátt. Unnur á sjálf 2 stráka ásamt því að vera stjúpmóðir. Yngri strákurinn hennar Zion er einhverfur og hún hefur opnað umræðu um einhverfuna og að vera móðir einhverfs barns. Zion er 4 ára glaður og söngelskur strákur og það er einstaklega gaman að fá innsýn í þeirra líf.
Instagram - unnurola.is
Unnur er gullsmiður og vinnur í fjölskyldufyrirtækinu- Gullsmiðja Óla þar sem foreldrar hennar og systur vinna saman. Unnur er einkaþjálfari og býður einnig upp á fjarþjálfun, það er aðalvinna hennar og sýnir hún líka frá því á sínum miðli. Við mælum eindregið með að fylgja henni.
Unnur kom ásamt Alexöndru og Ingveldi fyrir stuttu til okkar og þær sögðu okkur frá starfi Íslensku barnahjálparinnar í Kenía. Þær hafa allar farið til Kenía og unnið gríðarlega mikilvægt hjálparstarf í þágu barna. Við mælum með að hlusta á þann þátt líka.
Þessi þáttur er í boði:
-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.
godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117
Mobility Aid:
Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is
Childs Farm
Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.
Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.
Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.
Sölustaðir:
Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Hlaðvarpið 4 vaktin. Innehållet i podden är skapat av Hlaðvarpið 4 vaktin och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.