Íslenska barnahjálpin í Kenía
Heimasíða: islenskabarnahjalpin.is
Það er magnað að hlusta á þessar þrjár konur segja frá sjálfboðaliða starfinu og lífinu úti í Kenía þar sem Íslenska Barnahjálpin er að reka barnaskóla ásamt því að aðstoða einstæðar mæður. Þær Unnur Kristín Óladóttir, móðir, gullsmiður og einkaþjálfari og Alexandra Noor Douglas, frumkvöðull eru nýkomnar úr sinni fyrstu ferð til Kenía en ekki sinni seinustu ferð eins og þær taka báðar fram. Þær tvær fóru ásamt mökum sínum Tamar og Ara en tengdamamma þeirra Þorgerður Elísdóttir hefur verið stór partur af starfinu úti. Ingveldur Ýr Jónsdóttir fór fyrst árið 2018 og hefur farið nánast árlega út ásamt maka sínum Ársæli Hafsteinsson og dóttir sinni Jasmínu og eru þau einnig mikill hluti starfsins og talar Ingveldur um hvað þetta starf sé dýrmætt fjölskyldunni í heild.
Það þarf að hlusta á þáttinn allann til að skilja umfang starfsins og hversu áhrifaríkt það er. Starfið snertir greinilega marga bæði Íslendinga jafnt og Keníu búa.
Að styðja við börn til skólagöngu og við uppbyggingu skólanna er einn stærsti hluti hjálparstarfs (ÍB). Skólarnir í Kenía eru staðsettir í Nairobi og í Loitoktok sem er í Masaailandi við rætur Kilimanjaro. En það er ekki það eina sem starfið snýst um og segja þær frá heimsóknum sem þær fóru í til einstæðra mæðra og hjálpuðu þeim meðal annars að byggja upp fyrirtæki.
Þessi þáttur er í boði:
-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.
godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117
Mobility Aid:
Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is
Childs Farm
Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.
Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.
Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.
Sölustaðir:
Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið
ögn breytilegt eftir verslunum.
Þeir sem hafa áhuga að fara í sjálfboðaliðastarf úti eða ævintýra ferð, þá er það ferðaskrifstofan Ferðasýn sem sér um ferðirnar og það er í boði að sérhanna ferð eftir sínum þörfum. Þá er hægt að blanda saman sjálfboðaliða ferð og ævintýra, það er boðið upp á Safari og fleiri afþreyingar.
-Hægt er að styðja við starfið með að gerast styrktarforeldri barns og kostar það 4.500 krónur á mánuði. Með því er verið að styðja við skólagöngu, skólagögn og 1 máltíð á dag.
-Hægt er að kaupa gjafabréf og fær handhafinn fallegt gjafabréf með tilheyrandi texta í hendurnar. Einnig hægt að styðja við starfið með frjálsum framlögum.
-Öll framlög til ÍB eru forskráð sem skattaafsláttur á næsta skattframtali.
-Hægt er að fylgjast með Íslensku Barnahjálpinni á samfélagsmiðlum eða á heimasíðu samtakanna.
- barnahjalpin@gmail.com