4. vaktin
Avsnitt

84. Spjall við systkini fatlaðra barna - Hera og Vala

Dela

Í þessum þætti fengum við til okkar Heru Arnardóttur og Völu Fanneyju Farestveit. Þær eru báðar á menntaskólaárunum, Hera að kveðja þau og útskrifaðist í vor og Vala að ljúka fyrsta ári. 

Þær komu til okkar í þáttinn til að ræða það einstaka hlutverk sem þær eru báðar deila en þær eru systur fatlaðra barna. 

Í þættinum fáum við að hlusta á einlæga lýsingu þeirra af því hlutverki og hvernig það er að eiga fatlað systkini. Þær báðar hafa góða innsýn inn í hvað er eins og hvað er frábrugðið þar sem þær eiga fleiri systkini. Það sem einkennir þáttinn einna helst er hvað þær hafa góða sýn á lífið og hvernig sú reynsla að kynnast veruleika fatlaðs fólks hefur haft mótandi áhrif á þær. 

Sjón er sögu ríkari eða eyru eru sögu betur lýsandi og leggjum við því til að skella sér beint í hlustun á þessum skemmtilega þætti. 
Þessi þáttur er í boði:

-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

Mobility Aid:

Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600.

Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

Childs Farm

Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur. 

Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

Sölustaðir:

Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

ögn breytilegt eftir verslunum.


Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Hlaðvarpið 4 vaktin. Innehållet i podden är skapat av Hlaðvarpið 4 vaktin och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.