4. vaktin
Avsnitt

86. Team Rynkeby hjólarar sem safna fyrir Umhyggju

Dela

  1. Nýjustu gestir hlaðvarpsins ​ vaktin eru Steffy Þórólfs sem er hluti af Team Rynkeby hjólahópnum núna í ár og Louisa Sif sem hefur tvisvar sinnum verið þátttakandi með liðinu.


Team Rynkeby samtökin eiga 25 ára afmæli í ár. Þátttakendur hjólaárið 2025-2026 eru um 2500 hjólarar og um 500 aðstoðarfólk í 68 liðum frá 9 löndum auk evrópu liðs. Ísland hefur tekið þátt frá árinu 2017 og er þetta því 10. tímabilið. Allt fjármagn sem þau safna rennur óskipt til rannsóknasjóðs Umhyggju, regnhlífa samtök langveikra barna sem vinna að bættum hag barna með umfangsmiklar stuðningsþarfir og fjölskyldna þeirra. Innan Umhyggju starfa 19 félög og samtök. 

Það er auðvelt að hrífast með þessu flotta framtaki og verkefni sem fólk er tilbúið að taka sér fyrir hendi fyrir gott málefni.


Mælum með að finna Team Rynkeby á samfélagsmiðlun og fylgjast með æfingum og ferðinni sjálfri. Ferðin árið 2026 er farinn 4. Júlí.


Þessi þáttur er í boði:

-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

Mobility Aid:

Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og hjálpartækjaleiga sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu. Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

Childs Farm

Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur. 

Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

Sölustaðir:

Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

ögn breytilegt eftir verslunum.


Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Hlaðvarpið 4 vaktin. Innehållet i podden är skapat av Hlaðvarpið 4 vaktin och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.