4. vaktin
Avsnitt

81. Hjálpartæki sem bæta lífsgæði, hjálpartæki fyrir fatlaða, langveika og alla sem þurfa

Dela

Við fengum til okkar 2 aðila til að segja okkur frá ýmislegu tengdu hjálpartækjum fyrir þá sem þurfa vegna fötlunar, veikinda, verkja eða öðru. 

Þeir fræða okkur um úrvalið, þróunina, möguleikana og hvað þarf að hafa í huga. Þeir koma með sitthvort sjónarhornið en Bergur kemur inn sem notandi og Sigurður sem faðir stúlku sem er notandi. 

Sigurður Jóhannesson er faðir hennar Sunnu sem er með AHC taugasjúkdóm. Sigurður hefur komið áður til okkar og sagt bæði frá þeirra lífi, AHC og einnig Góðvild en hann er í stjórn Góðvildar Styrktarsjóðs. Hann er aktivisti og eigandi búðarinnar Mobility sem selur og leigir ýmis hjálpartæki fyrir fatlaða, langveika og þá sem þurfa tímabundið. Það er mjög fjölbreytt úrval af bæði smærri og stærri hjálpartæki fyrir allan aldur. Mobility er í Urriðarholti sem og eru þau styrktar aðilar hlaðvarpsins. 

Bergur Þorri Benjamínsson er varaformaður stjórnar Sjálfsbjargar á Höfuðborgarsvæðinu og baráttumaður fyrir bættu aðgengi. Bergur hefur komið að mörgum verkefnum sem tengjast þessum málaflokki. 

Hlutverk Sjálfsbjargar er að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðs fólks á Íslandi og eftir atvikum annarra fatlaðra og gæta réttinda og hagsmuna þess. Sérstaklega skal unnið að því að tryggja hreyfihömluðum félagsmönnum sem öðrum aðgengi að mannvirkjum, umhverfi, menntun, atvinnu og upplýsingum.


Þessi þáttur er í boði:

-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

Mobility Aid:

Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Lágmarksleiga er yfirleitt 3 dagar.Þau bjóða uppá útkeyrslu á Höfuðborgarsvæðinu á opnunartíma verslunar gegn 5.000kr sendingargjaldi. Einnig er send út á land á kostnað leigutaka. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600.

Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.

Childs Farm

Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur. 

Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

Sölustaðir:

Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

ögn breytilegt eftir verslunum.




Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Hlaðvarpið 4 vaktin. Innehållet i podden är skapat av Hlaðvarpið 4 vaktin och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.