Farið verður yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlakonunni Elísabetu Ingu Sigurðardóttur og Hallmundi Albertssyni lögmanni. Elísabet hefur setið undir árásum Helga Magnússonar og Ólafs Arnarson í nafnlausum skrifum þeirra á DV en pistill sem þeir birtu í liðinni viku hefur nú verið fjarlægður af vef fjölmiðilsins. Hallmundur hefur tekið að sér hagsmunavörslu fyrir forsvarsmenn hlaðvarpsins Chess after Dark en Fjölmiðlanefnd hefur sótt að þeim félögum eins og nokkrum öðrum hlaðvarpsstjórnendum sem ekki hafa viljað skrá starfsemi sína undir merkjum fjölmiðlunar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur staðið í eldlínunni síðustu daga vegna endurskoðunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði en fyrr í vikunni gekk hin svokallaða Breiðfylking frá framlengingu samninga við SA til næsta árs. Hún hefur verið mjög gagnrýnin á framgöngu forystu VR sem beið með það fram á síðustu mínútu að staðfesta framlengingu samninganna. Hefur Sólveig frá því í gærkvöldi haft uppi stór orð um aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar sem hún segir að hafi verið kominn fram þegar Breiðfylkingin undirritaði framlengingu samninganna, jafnvel þótt látið hafi verið að því liggja að pakkinn hafi komið fram í kjölfar bægslagangs VR og fagfélaganna sem voru í samfloti með félaginu.
Jón Bjarnason er bóndi og oddviti Hrunamannahrepps. Hann hefur gagnrýnt harkalega fyrirætlanir stjórnvalda um stóraukna gjaldtöku á ferðaþjónustuna hér á landi og sér í lagi á Suðurlandi. Vísar hann þar bæði til hækkunar virðisaukaskatts á starfsemi baðlóna og náttúru- og innviðagjald sem sérstaklega er beint gegn Þingvöllum, Gullfossi og Geysi sem eru allt áningarstaðir á hinum svokallaða Gullna hring.
Hann ræðir þessi mál ásamt Bryndísi Björnsdóttur sem er framkvæmdastjóri Laugaráss Lagoon, sem er eitt af nýjustu baðlónum landsins og staðsett við bakka Hvítár í Biskupstungum. Fyrirtæki hennar endurmetur nú hvort ráðist verði í hóteluppbyggingu á svæðinu í kjölfar þess að stjórnvöld tilkynntu um stóraukna skattheimtu á starfsemi fyrirtækisins.
Í þættinum verður sömuleiðis rætt við Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóra peningastefnu en fyrr í vikunni tilkynnti Seðlabanki Íslands að hann hyggðist halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 8%. Hvað þarf til þess að bankinn taki að lækka vexti á ný og hvernir sér Þórarinn horfurnar þróast í íslensku hagkerfi á komandi misserum?
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Ritstjórn Morgunblaðsins. Innehållet i podden är skapat av Ritstjórn Morgunblaðsins och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.