Spursmál
Avsnitt

#137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi

Dela

Á sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur?

Þeim spurningum verður reynt eftir fremsta megni að svara í Spursmálum dagsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins mætast og fara yfir stöðuna. Ljóst er að verðbólgan mælist langt yfir því marki sem samið var um árið 2024.

Í þættinum verður einnig rætt við Óskar Magnússon, lögmann, rithöfund og bónda á Sámstaðabakka í Fljótshlíð og Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.

Þau verða meðal annars spurð út í nýjustu vendingar í máli áhafnarinnar á Bandero sem gerði óskunda inni í íslenskri lögsögu fyrir skemmstu og einnig verður vöngum velt yfir því hvernig það gat komið til að böðullinn Angjelin Sterkaj sem varð manni að bana með hrottafengnum hætti í Rauðagerði árið 2021 er laus úr íslensku fangelsi og farinn til heimalands síns, Albaníu.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Ritstjórn Morgunblaðsins. Innehållet i podden är skapat av Ritstjórn Morgunblaðsins och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.