Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum?

Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.

Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald.

Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni?

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Ritstjórn Morgunblaðsins. Innehållet i podden är skapat av Ritstjórn Morgunblaðsins och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.