Nú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan?
Þeirri spurningu munu þau Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar reyna að svara í Spursmálum dagsins.
Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Loga Bergmann Eiðsson og Jón Júlíus Karlsson en þeir halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi Seinni níu. Þar verður óhjákvæmilega rætt um fráfall Haraldar Noregskonungs en einnig önnur tíðindi af innlendum og erlendum vettvangi.
Áður en rætt verður við þessi tvö tvíeyki mun Ingibjörg Davíðsdóttir, fyrrverandi sendiherra Íslands í Noregi mæta í Spursmál og ræða fráfall konungs og ríkisarfann sem nú hefur sest í hásætið í Ósló, Hákon VIII.
Í lok þáttar verður rætt við Sigríði Maríu Egilsdóttur, lögmann í New York og fyrrverandi varaþingmann Viðreisnar. Hún hefur skipt um skoðun í Evrópusambandsmálum. Hún hyggst segja nei á morgun og fyrir því eru mjög forvitnilegar ástæður sem hún verður spurð út í.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Ritstjórn Morgunblaðsins. Innehållet i podden är skapat av Ritstjórn Morgunblaðsins och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.