Hilmar Veigar Pétursson stýrir Fenris Creations, áður CCP. Hann var sannfærður um að Ísland ætti að ganga í ESB. Nú hefur hann skipt um skoðun. Hann lýsir ástæðum þess í aukaþætti af Spursmálum.
Hann flutti ræðu í liðinni viku á vettvangi samtakanna Áfram Ísland þar sem sjónum var beint að nýsköpunarfyrirtækjum á Íslandi og möguleikum slíkra fyrirtækja innan eða utan ESB.
Ræðan hlaut mikla athygli enda hafði Hilmar Veigar talað skarpt fyrir því á árinu 2014 að halda ætti áfram aðildarviðræðum við ESB og taka upp evru í stað krónunnar.
Um svipað leyti flutti Hilmar Veigar til Bretlands þar sem hið svokallaða BREXIT var nýlega um garð gengið. Hann segir að reynslan þaðan kenni að ef Ísland gangi einu sinni til liðs við ESB verði aldrei þaðan snúið að nýju.
Hann mun einnig fara yfir það í viðtalinu hvernig hann telji að það að „kíkja í pakkann“ muni taka athygli frá brýnum úrlausnarefnum í íslensku samfélagi og koma í veg fyrir að þjóðin grípi ótrúleg tækifæri, ekki síst á sviði hugverkaiðnaðarins.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Ritstjórn Morgunblaðsins. Innehållet i podden är skapat av Ritstjórn Morgunblaðsins och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.