Við vorum að keyra frá Blönduósi til Reykjavíkur og vorum í svo miklu stuði að ræða um allskonar yfirnáttúrulega hluti að við ákváðum að skella í þátt á leiðinni. Hljóðgæðin eru því ekki þau bestu, en þetta er hrár og ótrúlega skemmtilegur þáttur þar sem við ræðum um stóru spurninguna.....Voru risaeðlur mögulega bara drekar?

Ef við setjum upp samsærisgleraugun og skoðum söguna út frá þeirri kenningu að risaeðlur og drekar hafi verið sama fyrirbærið, þá breytist opinbera tímalínan algjörlega. Samsæriskenningin gengur út á það að risaeðlur hafi ekki dáið út fyrir 66 milljónum ára, heldur hafi vísindasamfélagið hulið þann sannleika að menn og risaeðlur lifðu hlið við hlið fram á miðaldir og að þessi dýr hafi einfaldlega verið kölluð „drekar“.

Sterkasta vopn þessarar kenningar er sú staðreynd að nánast allir menningarheimar sögunnar, sem höfðu engin samskipti sín á milli, eiga sjálfstæðar sögur og myndir af risavöxnum eðlum. Frá Kína til Evrópu, og frá frumbyggjum Ameríku til Egyptalands, teiknaði fólk skriðdýr með langa hálsa, sterka hala og ógnvænlegar klær löngu áður en nútíma steingerfingafræði hófst á 19. öld. Spurningin sem samsæriskenningamenn spyrja er: Hvernig gátu allar þessar ólíku þjóðir lýst sömu dýrunum svona nákvæmlega ef þær sáu þær aldrei lifandi?

Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu til okkar í áskrift þar sem þú færð yfir 100 yfirnáttúrulega þætti!

www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Ghost Network®. Innehållet i podden är skapat av Ghost Network® och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.