Í þættinum í dag beinum við sjónum okkar að tækninni sem gæti breytt mannkyninu að eilífu og byrjum á því að skoða Neuralink. Þetta fyrirtæki Elon Musk vinnur að því að græða örsmáan tölvukubb beint í mannsheilann, sem í fyrstu á að hjálpa lömuðu fólki en stefnir á að tengja huga okkar beint við stafræna heiminn. Hinn helmingurinn af þessari jöfnu er gervigreindin, eða AI, sem er að þróast á ógnarhraða og á samkvæmt Musk eftir að verða manninum yfirsterkari nema við finnum leið til að hugsa og vinna á ljóshraða með henni. Þegar þessi tvö risastóru öfl mætast kvikna hinar hrollvekjandi samsæriskenningar sem við ræðum í þættinum. Við veltum fyrir okkur hvort Neuralink og AI verði notuð af stórfyrirtækjum til að ná algjörri hugarstýringu og fylgjast með hverri einustu hugsun okkar, og spyrjum hvað gerist ef tölvuþrjótar geta bókstaflega „hakkað“ meðvitund fólks. Erum við að horfa á stærsta framfaraspor sögunnar eða upphafið að dökku tækniræði þar sem frjáls vilji heyrir sögunni til?
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Ghost Network®. Innehållet i podden är skapat av Ghost Network® och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.