Þórunn Kristín lýsir sér sjálfri sem rammíslenskri norn. Hún hefur iðkað þessi fræði lengi og er höfundur bókarinnar Nornin í þér þar sem hún deilir m.a. eigin reynslu og þeirri andlegu þekkingu sem hefur fylgt mönnunum í gegnum aldirnar.

Við ræðum allt milli himins og jarðar, hvernig hún fann innri nornina í sér og hvað varð til þess að hún virkjaði næmnina og byrjaði að sjá heiminn í gegnum augu nornarinnar og svörum spurningunni hvað er að vera norn?

Bókin er leiðarvísir sem á að hjálpa lesendum að finna sinn innri styrk, tengjast náttúrunni og hleypa „norninni“ innra með sér út. Þórunn lítur á nornir sem heilara, grasalækna og fólk sem vill skilja eftir sig fallegt ljós í heiminum. Í stað þess að fjalla um galdra sem einhverja óraunverulega bíómyndatöfra, kennir bókin hvernig hægt er að nýta ásetning, galdra og helgisiði við hversdagslegar athafnir til að bæta líf sitt og auka sjálfstraust.

Nornin í þér er svo falleg bók sem allar nornir ættu að eiga!

www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Mentioned in this episode:

d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

Komdu í áskrift

Galdrabox

Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Ghost Network®. Innehållet i podden är skapat av Ghost Network® och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.