Í dag ætlum við að kafa ofan í einn dularfyllsta og umtalaðasta stað jarðarinnar: CERN, Evrópsku kjarnorkurannsóknastofnunina í Sviss. Þar neðanjarðar hvílir stærsti eindahraðall heims, þetta eru 27 kílómetra löng rör ofan í jörðinni þar sem vísindamenn láta atóm rekast saman á nánast ljóshraða til að skilja uppruna alheimsins og finna hina svokölluðu „guðseind“.

En einmitt vegna þess hve rannsóknirnar eru flóknar og framandi, hefur CERN orðið að algjörri gróðrarstíu fyrir villtar samsæriskenningar. Sú lífsegasta segir að verið sé að opna gáttir yfir í aðrar víddir eða samhliða alheima, sem sumir telja þessi vísindatilraun sé að breyta tímalínunni okkar og gæti verið útskýringin á Mandela-effekt. En aðrir óttast að tilraunirnar skapi svarthol sem gætu gleypt jörðina, eða að vísindamennirnir séu að fást við myrk andleg öfl en kenningarnar fengu rækilega byr undir vængi þegar stytta af hindúaguðinum Shiva, guði eyðingarinnar, var reist fyrir utan höfuðstöðvarnar.

Hvaða áhrif ætli Cern hafi á jörðina og okkur mannfólkið? Nú hefur verið slökkt á þessu tæki vegna "viðhalds" næstu 4 árin...... og telja margir að það muni valda því að allskonar erfiðir atburðir munu eiga sér stað og að þetta hafi mun meiri áhrif á okkur en vísindamenn vilja meina.

Þú getur hlustað á þáttinn í fullri lengd inn á Patreon með því að gerast áskrifandi.

www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Ghost Network®. Innehållet i podden är skapat av Ghost Network® och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.