Við erum komin í þriðju plötu Atlantasveinanna í MASTODON er nefnd var - og heitir enn - Blood Mountain (Relapse 2006) og einhver hafa haldið því fram að hér kveði við nýjan tón og að annað hljóð sé komið í skrokkinn o.s.frv. svo mikið reyndar að hún virðist stundum týnast á milli Leviathan og Crack The Sky í Mastadonheimsþvaðrinu. Hví er það svo?
Höddi gefur ekki þumlung eftir er hann heldur áfram að draga Birki um lendur loðfílsins og lætur engan Bilbo á sér finna.
Tónlist í þættinum SCREAMS OF AGONY - Scared of Heights (2026)
Upphafsstef Stokkið í eldinn
Allow Us To Live með PATRONIAN af Stabbed With Steel (2022)
Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.
Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.
Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.
Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.
Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.
Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson. Innehållet i podden är skapat av Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.