Í þessum þætti verður allt vitlaust. Það er margt um manninn, það er hangið harkalega og galsinn töluverður enda fólk upp um alla veggi í fíling að tala (hrópa) á hvort annað um það sem máli skiptir; þungarokk, vináttu og sjónvarpsþættina um Hunter og bestu vinkona hans hana DeeDe McCall.
Til að aðstoða okkur við að skvera dag tvö Sátunnar 2026 fengum við Sindra "Skúbbara" Kamban, Hauk Þór, Móu Hlíf, Arnar Eggert og fleiri í stólana og það var og!
Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.
Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.
Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.
Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson. Innehållet i podden är skapat av Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.