Moonstone tattoo studio Reykjavík færir þér...

Það er eitthvað svo dásamlegt að hugsa til þess að við styðjum Sátuna. Það er að segja; þegar við félagarnir lesum nótur hvers þáttar og í þeim stendur að Stokkið í eldinn styður Sátuna. Við styðjum hana með stolti og þannig min það áfram vera!

Alltént, þá lögðum við upp með nokkur markmið varðandi aðdraganda Sátunnar 2026 og svo, sem okkur þótti mikilvægast, var að reyna að færa hlustendum glóðvolgar fréttir og rafmagnaða stemmningu "beint" frá Sátunni, þ.e. í eins beinni útsendingu og mögulegt er í gegn um svona hlaðvarpsmiðil. Og það tókst að mestu. Við gerðum þrjá þætti á meðan hátíðinni stóð og hér er svo síðastði þátturinn vegna Sátunnar 2026...

Dagur þrjú skveraður! Við förum yfir alla tónleikana sem áttu sér stað í íþróttahúsinu sem og hitamælum off-venue fílinginn ásamt fleiri atriðum.

Tónlist í þættinum 
DRÁPA - Medicate (2024)


Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.

Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. 
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.

Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.

Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson. Innehållet i podden är skapat av Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.