Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir

Ævintýri. Þor. Landamæraleysi. Fífldirfska. Framsækni. Þrekvirki. Leikur. Galdrar. Draumar. Martraðir. Athafnir. Sveppatripp. Hugbreytandi. Þyngdarleysi. Víddir. Ímyndunarafl. Sannfæring. Þjóðlegt. Draugalegt. Ágengt. Heillandi. Þetta er bara brot af þeim orðum sem koma til tals þegar hin ómótstæðilega og undraverða Blót fer á fóninn. 

Kópavogs fyrirbærið STRIGASKÓR NR. 42 gáfu út Blót sitt, upp á eigin spítur, haustið 1994. Kraftaverkið átti sér stað í Hljóðrita undir dyggri stjórn, vökulu eyra og opnum hug Jóns Skugga (Jóns Þorleifs Steinþórssonar). Plata hlaut mikið lof gagnrýnendur og langt leiddir kafarar héldu ekki vatni yfir plötunni og þannig er það enn. Nýlega bættist Hörður okkar Ólafs í hóp téðra kafara og er það vel. Maðurinn breyttist í trekt en Birkir...

"Ég; persónulega þá er þetta erfiðasti þáttur sem ég hef tekið upp. Mér er, að er virðist, í blóð borið að tala um þessa plötu og það hef ég gert áratugum saman enda er hún mitt eftirlæti. En með hljóðneman í tríninu og með hlustendur í huga, þá minnkar völlurinn (böllurinn?) á mér. Stress, efi og smæð gagnvart sköpunarverkinu nær á mér takinu.En ekki örvænta, B. Þetta er bara fyrsti þátturinn í umfjöllun okkar um Blót. Ójá. Meira á leiðinni!"

Sérstakur gestur þáttarins er Haukur Bragason; lundarmannagoðinn, hlaðverpill (hlustið á Tvo Kalla hér)og þungarokkari.

Blót er hliðstæðulaus. Komið með okkur í ferðalag og reynið að kryfja plötuna með okkur og njóta því það er svo margt sem hægt er að segja, svo margt sem hún örvar og við erum bara rétt að byrja!

SJÁUMST Á SÁTUNNI KÆRU VINIR

SÁTAN 2026 ER Á NÆSTA LEITI.
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA HÉR.


Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.

Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.

Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.

Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.



 

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson. Innehållet i podden är skapat av Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.