Lífeyrisskuldbindingar eru eitt stærsta og erfiðasta verkefni sem stjórnvöld í Evrópu standa frammi fyrir. Fátt ógnar framtíð Evrópusambandsins meira en ósjálfbærni lífeyriskerfisins í einstökum löndum.

Þegar Íslendingar velta því fyrir sér hvort rétt sé að ganga til liðs við Evrópusambandið verða þeir að átta sig á því hvernig líklegt er að sambandið takist á við erfiða stöðu þegar kemur að lífeyrisréttindum. Sú hætta er fyrir hendi að íslenskt launafólk, sem tekist hefur að tryggja fjármögnun lífeyrisskuldbindinga, þurfi að sætta sig við lakari lífeyri og/eða hærri skatta til að tryggja fjárhagslegan stöðugleika Evrópusambandsins ef til aðildar kemur. En um þetta ræðir forystufólk ríkisstjórnarinnar ekki – ekki frekar en leiðtogar Evrópusambandsins.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör olibjorn. Innehållet i podden är skapat av olibjorn och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.