Með því að ganga til liðs við ESB tökum við okkur stöðu innan tollmúra ríkjabandalags. Okkur verður bannað að athafna okkur utan múranna án sérstaks leyfis og þátttöku allra annarra aðildarlanda.

Í stað þess að horfa á heiminn allan ætlar ríkisstjórnin að festa Ísland inn í tollabandalag og færa ákvörðunarvald um viðskiptasamninga okkar til Brussel.

Heimurinn er stærri en Evrópusambandið. Hagvöxtur, fólksfjölgun og nýir markaðir verða á næstu áratugum að verulegu leyti utan Evrópu. Bandaríkin verða áfram efnahagslegt og tæknilegt stórveldi. Asíuríki sækja fram. Norðurslóðir fá aukið efnahagslegt og hernaðarlegt vægi í framtíðinni.

Tækifærin blasa við en við Íslendingar, öðrum þjóðum fremur, þurfum frelsi til að grípa og nýta tækifærin.

29. ágúst mun ég segja nei takk við því að leggja upp í ferðalag til Brussel. Og um leið segi ég já við innri markaði Evrópu í gegnum EES.

Já við áframhaldandi samstarfi innan EFTA.

Já við nánari tengslum við Bandaríkin.

Já við auknum samskiptum við Bretland og Kanada.

Já við auknum viðskiptum við Asíu.

Já við því að kanna nýtt samstarf á Norður-Atlantshafi.

Já við eigin viðskiptastefnu.

Já við því að Íslendingar ráðum áfram yfir sjávarauðlindum okkar. Já við því að við nýtum orkuauðlindir á okkar forsendum.

Og já við þeirri hugmynd að lítil þjóð geti í krafti fullveldis verið opin fyrir öllum heiminum án þess að þurfa að tilheyra pólitísku ríkjasambandi 27 annarra þjóða.

Já við því að við stöndum á eign fótum meðal vina og bandamanna. Já við því að við grípum tækifærin sem bíða okkar.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör olibjorn. Innehållet i podden är skapat av olibjorn och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.