Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland, vill að þjóðin veiti þeim umboð í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst til að hefja aðlögunarviðræður við ESB án þess að nokkuð liggi fyrir um hvað felist í því umboði.

Valkyrjur ríkisstjórnarinnar forðast að upplýsa um markmið stjórnarinnar gagnvart Evrópusambandinu. Engu er líkara en í hugum þeirra sé eðlilegt og skynsamlegt að hefja  samningaviðræður án þess að nokkur viti hvert sé ferðinni heitið. Það eina sem er ljóst er að forsætisráðherra segist ætla að selja Ísland fokdýrt.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör olibjorn. Innehållet i podden är skapat av olibjorn och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.