Nóbelsverðlaunahafinn Gunnar Myrdal, sem oft er sagður arkitekt hugmyndafræði sænskra jafnaðarmanna í velferðarmálum, hélt því fram að þak á leiguverð sé eitt skýrasta dæmið um vonda stjórnarstefnu í mörgum vestrænum löndum. Assar Lindbeck, landi Myrdals og einn áhrifamesti hagfræðingur Svíþjóðar í áratugi, var sannfærður um að leiguþak sé skilvirkasta leiðin til að eyðileggja borg fyrir utan loftárásir. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að hugmyndin að lögfesta svokallaða leigubremsu sé heimskuleg.
Hagfræðingar greinir á um flest en um eitt eru þeir flestir sammála: Opinber verðstýring á leigumarkaði er afleit hugmynd sem dregur úr gæðum íbúðarhúsnæðis, minnkar framboð, eykur eftirspurn og skorturinn verður meiri.
Þessu er Ragnar Þór Ingólfsson og félagar hans í ríkisstjórn ósammála.
Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör
olibjorn. Innehållet i podden är skapat av olibjorn och inte av,
eller tillsammans med, Poddtoppen.