Heimskviður
Avsnitt

271 - Allir elska Rasmus, gagnaver og gervigreind

Dela

Fátt hefur verið meira rætt í Danmörku síðustu vikur en þættirnir Allir elska Rasmus á sjónvarpsstöðinni TV2. Í þeim er ungum, grunlausum leikara og grínista talin trú um að hann og besti vinur hans séu að búa til kvikmyndina sem hann hefur alltaf dreymt um að gera. Hann er hins vegar sá eini sem heldur það - hin 149 sem koma við sögu - þar með talinn besti vinurinn - vita öll að það er ekki verið að gera neina bíómynd, heldur raunveruleikaþátt í anda Truman show, þar sem Rasmus er blekktur í fjóra mánuði áður en hið sanna kemur í ljós. Viðbrögð áhorfenda voru á einn veg: Þetta er ekki skemmtun heldur einelti. Þættirnir voru teknir af dagskrá en aðal gagnrýnin hefur snúist að TV2 leiki sér að andlegri heilsu Rasmusar með því að setja hann í þessar aðstæður og leyfa svo öðrum að horfa á.

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna stendur nú sem hæst í Tyrklandi og þar eru ákveðin næstu skref í loftslagsmálunum. Þar er sérstök áhersla á rafvæðingu. 740 milljónir jarðarbúa hafa ekki aðgang að rafmagni og þegar svona er þá kvikna ýmsar siðferðisspurningar, hvort áherslan sé á réttum stað. En við ætlum að setja fókusinn á gervigreindina og gagnaverin, því í Tyrklandi verður þrýst á tæknirisanna að undirrita yfirlýsingu um að tryggja sjálfbæra þróun og notkun gervigreindar. Þetta tengist hraðri uppbyggingu gagnvera um allan heim, því gervigreindin verður aldrei betri en gögnin sem hún byggir á, og þar hefur verið ótrúlegur vöxtur og gagnaver risið um allan heim. En það er vaxandi óánægja með þessa þróun, afleiðingar sem hún gæti haft og hvort að hægt sé að stýra betur þeirri vegferð sem tæknin og gervigreindin og gagnaverin eru á.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.