Heimskviður
Avsnitt

268 - Auðir stólar og fjölþáttaógnir

Dela

Fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst mikið í fréttum undanfarið og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu hafa þessar ógnir og árásir aukist í Evrópu. Að sumra mati segja þessi orð þó ekki nákvæmlega hvað felst í fyrirbærinu. Framkvæmdastjóri NATO segir að fjölþáttaógnir séu allt of krúttlegt orð miðað við hvað það eigi að ná yfir og utanríkisráðherra Svíþjóðar segir það helst minna á umhverfisvænan bíl. Við skoðum orðið, merkinguna og ógnirnar í þættinum í dag. Svo fjöllum við um auða stóla. Einmanaleiki eykst, þetta heyrum við aftur og aftur. Í nýlegri rannsókn kemur fram að hlutfall breskra ungmenna sem upplifa sig einmana hefur fimmfaldast á undanförnum tólf árum. Við ætlum að segja sögu manns sem sagði einmanaleikanum stríð á hendur. Í minningu besta vinar síns reynir hann að fylla tóma stóla á börum í Bretlandi og framtakið hans hefur breiðst út til fleiri landa. Birta talaði við Dean Perryman um einmanaleikann, auðu stólana og vin hans Rob.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.