Kosningar og Kushner verða í aðalhlutverki í þættinum í dag. Það eru nýafstaðnar spennandi kosningar í Serbíu, Brasilíu og í Ísrael og þingkosningarnar í Bandaríkjunum. En við ætlum að huga að því sem er fram unda. Hægri flokkar eru líklegir til að sigra í þingkosningum á Spáni um næstu mánaðamót og næsta vor kemur í ljós hvort Marine Le Pen verði næsti forseti Frakka. Komandi kosningar í nokkrum af stærstu ríkjum Evrópu gætu haft víðtækar afleiðingar í för með sér - ekki aðeins fyrir valdahlutföll innan viðkomandi ríkja, heldur einnig fyrir Evrópusambandið sjálft. Spánverjar ganga að kjörborðinu í þingkosningum í lok þessa mánaðar, á Ítalíu verður kosið ekki seinna en í nóvember; sömuleiðis í Póllandi, og afdrifaríkustu kosningarnar - um nýjan forseta - verða í Frakklandi í apríl og maí. Og titringur í aðdraganda þessara kosninga er þegar byrjaður að hafa áhrif í Brussel.
Við skoðum líka valdatíð Trumps í Bandaríkjunum og árin sem hann á eftir í embætti. En Trump, og fólkið hans hafa nýtt tímann sinn vel á valdastóli og verða fæst alveg áhrifalaus þegar hann flytur úr hvíta húsinu. Við ætlum að beina sjónum okkar að tengdasyni forsetans í fyrri hluta þáttarins í dag. Sá heitir Jared Kushner. Hann hefur vakið athygli síðustu ár en á sér um margt áhugaverða sögu, því faðir hans var í nánum tengslum við toppana í demókrataflokknum á níunda og tíunda áratugnum. Inn á heimilið ráku Bill og Hillary Clinton oft inn nefið og þegar Kushner var unglingur var hann látinn sofa í kjallaranum því gesti var hleypt í rúmið hans, það var Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Meðal annars þegar unglingurinn Kushner lánaði Benjamin Netanyahu herbergið sitt.