Danski lyfjarisinn Novo, sem hét áður Novo Nordisk, stendur á krossgötum. Fyrirtækið hefur notið ævintýralegrar velgengni vegna sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfjanna Ozempic og Wegovy en hefur verið í gegnum mikinn öldudal í rúmt ár. Nú hefur fyrirtækið farið í mikla endurskipulagingu með fækkun starfsfólks. Velgengnin hefur breytt heilbrigðiskerfum heimsins og aukið hagvöxt Danmerkur. Hallgrímur Indriðason skoðaði fyrirtækið og víðtæk áhrif þess.
Maður er nefndur Jos Leijdekkers, kallaður Bolle Jos, eða feiti Jos. Honum er að takast að búa til alvarlega milliríkjadeilu, því núna í byrjun mánaðarins þá hættu Hollendingar öllum fjárstyrkjum til Vestur-Afríkuríkisins Sierra Leone því þar heldur hann til núna. Hann er sagður hafa keypt Vestur-Afríkuríkið til þess að tryggja sér frið frá evrópskum lögregluyfirvöldum og að hann verði ekki framseldur, en þar hefur hann verið dæmdur í samtals hátt í 100 ára fangelsi. Og frá Afríku stýrir hann einum stærstu glæpasamtökum Evrópu.