Spegillinn
Avsnitt

Keir Starmer segir af sér - Skuggagervigreind

Dela

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana nota gervigreind í síauknum mæli í vinnu sinni en átta sig e.t.v. ekki á því að sum gagnanna sem unnið er með mega ekki fara út úr húsi, innihalda viðkvæmar og eða verðmætar upplýsingar. En um leið og gögn hafa verið sett inn í gervigreindarforrit er voðinn vís. Við ræðum við Ými Vigfússon sem er doktor í tölvunarfræði og tæknistjóri hjá Keystrike í lok þáttar.

Áður en sumarið er úti fá Bretar sinn sjöunda forsætisráðherra á tíu árum. Stjórnmálaskýrandi segir að ekkert eitt skýri óstöðugleikann í breskum stjórnmálum undanfarinn áratug en í ljós hafi komið að Keir Starmer, sem sagði af sér í morgun, hafi hvorki verið heillandi né góður stjórnandi.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.