Spegillinn
Avsnitt

Fiskeldi vex í heiminum öllum, ekki bara hér, Moldova og Úkraína nálgast ESB aðild og Fjallkonan og búningur hennar

Dela

Fiskeldi er ört vaxandi grein í matvælaframleiðslu. Í skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem birtist í dag kemur fram að vöxturinn er mun meiri en í annarri matvælaframleiðslu. Framleiðslan var rúmlega hundrað milljón tonn í hitteðfyrra og hafði aldrei verið meiri. Á Alþingi og víðar er tekist á um nýtt frumvarp um lagareldi.

Mikilvæg skref í aðildarumsókn Úkraínu og Moldóvu að Evrópusambandinu voru tekin í gær í Luxemborg, þegar fyrstu samningskaflarnir voru opnaðir. Bæði ríkin fengu stöðu umsóknarríkis sumarið 2022, en Ungverjar hafa lengi staðið í vegi fyrir aðildarviðræðum við Úkraínu. Ný aðildarríki Evrópusambandsins gætu þurft að sætta sig við takmörkuð réttindi fyrstu árin eftir inngöngu.

Fjallkonan sést sjaldan utan 17. júni; áhugi á búningi hennar og íslenskum búning yfirleitt hefur glæðst undanfarin ár, ekki síst hjá körlum.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.