JD Vance varaforseti Bandaríkjanna frestaði fyrirhugaðri ferð sinni til Sviss, þar sem viðræður um næstu skref í átt að friðarsamkomulagi milli Bandaríkjanna og Íran áttu að fara fram í dag. Ísraelar og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa samið um vopnahlé.
Innviðafélaginu er, samkvæmt frumvarpinu, ætlað að halda utan um uppbyggingu stórra þjóðhagslegra mikilvægra samgönguverkefna, ásamt að tryggja fjármögnun og hraða framvindu slíkra verkefna.
Allt hlutafé félagsins á að vera í eigu ríkissjóðs. Til að styrkja fjárhag félagsins er einnig til skoðunar að færa því eignarhald á þegar byggðum mannvirkjum á borð við Hvalfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng og brú yfir Hornafjarðarfljót. Jafnframt er nefnt að mögulega verði tekin upp veggjöld á leiðum eins og Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi til að dreifa gjaldbyrði og minnka framlög úr ríkissjóði.
Stjórnarliðar lögðu áherslu á samþykkt frumvarpsins til að setja aukinn kraft í vegaframkvæmdir en stjórnarandstæðingar sögðu frumvarpið illa unnið og fela í sér gjaldtöku ofan á skatta sem þegar séu lagðir á ökutæki.
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, komu til okkar.