Spegillinn
Avsnitt

Ráðherrafundur NATO í Brussel, baráttan um ferjuna Baldur og lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu

Dela

Viðvera Bandaríkjahers í Evrópu verður endurskoðuð á næstu sex mánuðum, sagði Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna á ráðherrafundi NATO í Brussel í morgun. Og hann kom kyrfilega á framfæri óánægju stjórnvalda í Washington með viðbrögð evrópskra aðildarríkja, þegar hernaðurinn gegn Íran hófst í byrjun febrúar.

Fulltrúar þriggja sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjörðum funduðu með innviðaráðherra í dag um siglingar Breiðafjarðarferjunnar Baldurs til Vestmannaeyja. Bæjarstjórinn í Vesturbyggð segir það hafa valdið miklu tjóni að missa Baldur úr siglingum yfir Breiðarfjörð og mögulega hafi Vegagerðin og ráðuneytið vanmetið áhrifin af þeirri ákvörðun.

Upplýsingaóreiðan var til umræðu á stórri ráðstefnu í Reykjavík í dag, sem bar yfirskriftina: „Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu.“ Þar kom fram að smæðin hér á landi hjálpar til við að sporna við því að óprúttnir aðilar komi villandi upplýsingum til fólks, en sífellt erfiðara verður þó að greina á milli réttra og rangra upplýsinga. Íslendingar þurfi að læra af reynslu annarra ríkja.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.