Mannlegi þátturinn
Avsnitt

Vilhelm Anton föstudagsgestur og matarspjall um heitt súkkulaði með Pálma Gunnars

Dela

Vilhelm Anton Jónsson, tónlistar-, sjónvarpsmaður, rithöfundur og leikari var föstudagsgesturinn okkar í dag. Villi lauk B.A. prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands og varð þekktur undir heitinu Villi naglbítur eftir hljómsveitinni 200.000 naglbítar. Einnig hefur hann verið kallaður Vísinda Villi en hann hefur skrifað barnabækur um vísindi. Vilhelm hefur einnig leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og var um nokkurra ára skeið spurningahöfundur og dómari í spurningakeppninni Gettu betur. Við fórum með honum aftur í tímann, til dæmis til Skotlands, Akureyrar og víðar. Hann sagði okkur líka frá fyrstu skáldsögu sinni, Strákurinn með sægrænu augun, sem er nýkomin út. En sú saga kom óvænt til hans þegar hann ætlaði sér að skria allt aðra sögu.

Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, í dag ræddum við heitt súkkulaði og hringdum í vin, Pálma Gunnarsson söngvara, sem kann ýmislegt fyrir sér þegar kemur að heitu súkkulaði.

Tónlist í þættinum:

Jamaica / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Finnbogi Kjartansson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Kling klang / Dátar (Þórir Baldursson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Hoist the Colours / The Wellerman (Gregor Justin Verbinski, Hans Zimmer, Ted Andrew Elliott & Terry Rossio)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.