Öldrun þjóðarinnar og vaxandi ummönnunarþörf aldraðra auka líkur á að starfsfólk þurfi að samræma vinnu og umönnun aldraðra foreldra. Slík ábyrgð getur haft áhrif á líðan, streitu og atvinnuþáttöku. Vala Rún Magnúsdóttir nýútskrifaður meistaranemi í mannauðsstjórnun fjallaði einmitt um þetta í rannsókn í meistaraverkefni sínu. Markmið hennar var að kanna meðal annars hvaða úrræði íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa til að styðja við starfsfólk sem annast aldraða foreldra. Vala Rún var hjá okkur í dag og sagði okkur betur frá rannsókninni og niðurstöðum hennar.
Almannavarnir hafa nýverið gefið út bækling og leiðbeiningar undir heitinu Verum viðbúin, og einnig er heimasíða tilbúin með þessu heiti, verumvidbuin.is. Tilgangurinn er að leiðbeina fólki um hvernig það getur undirbúið sig fyrir alvarlega atburði eða rof á grunnþjónustu sem getur haft áhrif á daglegt líf. Við reiðum okkur í ríkum mæli á raforku, fjarskipti og innflutning á nauðsynjunum og hvað gerum við og getum við án þess alls. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi Almannavarna kom í þáttinn í dag.
Svo hélt Jónatan Garðarsson áfram að fræða okkur í dag um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag talaði hann um bræðurna Jón Múla og Jónas Árnasyni. Jón Múli samdi tónlistina og Jónas textana og Jónatan fræddi okkur betur um feril þeirra bræðra í þættinum í dag.
Tónlist í þættinum:
Tempó prímó / Uppáhellingarnir (Jón Múli Árnason)
Dancing in the Street / Mamas and the Papas (Marvin Gaye, William Stevenson & Joe Hunter)
Eitt sumar á landinu bláa / Þrjú á palli (írskt þjóðlag, texti Jónas Árnasynir)
Í hjarta þér / Haukur Morthens (Jón Múli og Jónas Árnasynir)