Mannlegi þátturinn
Avsnitt

Nægjusamur nóvember, Evolytes stærðfræðikennsla og söfnun Bergs fyrir Ljósið

Dela

Nú er nýhafin Nægjusamur nóvember, sem Landvernd stendur fyrir í fimmta sinn. Átakið hvetur fólk til að njóta meira með því að neyta minna og er mótsvar við neysluhyggju, ekki síst nú þegar alls konar tilboðsherferðir og dagar eins og t.d. Svartur föstudagur og fleiri eru fram undan. En hvað felst eiginlega í nægjusemi og hvernig getum við fundið meiri ánægju í því sem við eigum og gerum nú þegar? Í ár er áhersla lögð á þátttöku almennings með vikulegum hugmyndum og áskorunum. Við ræddum í dag við Ragnhildi Kötlu Jónsdóttur, upplýsingastjóra Landverndar.

Evolytes námskerfið kennir börnum á aldrinum 5-11 ára stærðfræði í gegnum leik, sögur og ævintýraheim. Í rannsókn Evolytes, í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, reyndust börn svara fjórfalt fleiri dæmum þegar þau æfðu sig í gegnum leik. Í fyrra tóku um 9.000 grunnskólabörn þátt í Stóru stærðfræðikeppninni sem Evolytes heldur utan um. Börnin svöruðu samanlagt yfir 1,7 milljónum stærðfræðispurninga á nokkrum vikum, en í ár munu tólf þúsund taka þátt. Við ræddum við Mathieu Gretti Skúlason framkvæmdastjóra Evolytes í dag og hann sagð okkur frá því á hvaða hátt þau reyna að höfða betur til barnanna til að ná betri árangri í stærðfræðikennslu og nú líka í lestrarkennslu. Við heyrðum svo í Bergi Vilhjálmssyni, slökkviliðs- og sjúkraflutningamanni og björgunarkafara. Hann ætlar að þreyta þrekpróf, sem er eitt af inntökuskilyrðum í slökkviliðið, nema hann ætlar að gera það stanslaust í 12 tíma á meðan flestum öðrum dugar að fara í gegnum brautina einu sinni á um það bil tuttugu mínútum. Þetta ætlar hann að gera til styrktar Ljósinu, og þetta er ekki í fyrsta skipta sem hann leggur á sig þrekvirki til styrktar góðum málstað. Bergur sagði okkur meira frá þessu átaki og söfnuninni sem fer fram næsta laugardag.

Tónlist í þættinum: Bless á meðan / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Halldór Gunnarsson) Musik skal bygges utav gledje / Lill Lindfors (Lill Lindfors & Björn Barlach) Rigning og súld / KK (Kristján Kristjánsson) Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson (Jenni Jóns)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.