Mannlegi þátturinn
Avsnitt

Ráðgjöf við samfélagsmiðlanotkun, konur og kýr og vísindaspjall um tedrykkju

Dela

Samverustundir fara fram á Borgarbókasafninu Grófinni alla miðvikudaga milli kl. 16:00 – 18:00 í dag verður yfirskriftin Mjúkt net, þar sem allir geta komið sem vilja með símann sinn, spurningar, reynslu og jafnvel gremju. Þátttakendur miðla eigin þekkingu og reynslu, en einnig sérfræðingar í öryggi farsíma og í dag mun Anna Laufey Stefánsdóttir frá Stafrænni velferð, veita gestum ráðgjöf varðandi t.d. örugga símanotkun, persónuverndarstillingar, aðgangsheimildir forrita og fleira. Anna kom í þáttinn í dag.

Við fræddumst svo um erindi sem Sigurlaug Dagsdóttir, þjóðfræðingur hjá Þjóðminjasafnsins, hélt á Þjóðarspeglinum í síðustu viku. Yfirskrift erindisins var „Innilegt og náið samband“: Kýr og konur í gamla bændasamfélaginu. Þar fjallaði hún um þetta nána samband, þar sem kýrnar voru ekki bara nytjadýr heldur miklu meira og við fengum Sigurlaugu til að segja okkur betur frá þessu djúpa samband í dag. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að tedrykkja gæti haft jákvæð áhrif á hjarta og æðaheilsu.

Tónlist í þættinum:

Lag þetta gerir mig óðan / Ðe lónlí blú bojs (Tom T. Hall, texti Þorsteinn Eggertssson) Regndropar falla (við hvert fet) / Engilbert Jensen (Burt Bacharach, texti Þorsteinn Eggertsson) Söngur dýranna í Týról / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (P. Doddoge, texti Flosi Ólafsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.