Mannlegi þátturinn
Avsnitt

Útfararsjóður.is, Húsmæðraráð frá 1950 og Björg Jóna lesandi vikunnar

Dela

Stofnað hefur verið almannaheillafélag um útfararsjóð barna og unglinga og er markmið sjóðsins að standa straum af útfararkostnaði einstaklinga undir 18 ára aldri og tryggja að aðstandendur geti kvatt ástvini sína með reisn, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af reikningnum sem bíður þeirra að athöfn lokinni. Sindri Swan listamaður er stofnandi sjóðsins og hann segist vonast til að með tíð og tíma geti sjóðurinn staðið undir útfararkostnaði allra barna og unglinga hér á landi. við heyrðum í Sindra í þættinum. Við heyrðum svo reglulega skemmtilegt efni af safni RÚV, tvö innslög úr Húsmæðraþáttum sem voru í útvarpinu árið 1950. Þar gefur Helga Sigurðardóttir, sem var auðvitað landsfræg bæði fyrir matreiðslubækur sínar og svo var hún skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla Íslands. Í þessum innslögum gefur hún góð ráð í sambandi við matseðil vikunnar og svo sunnudagsmáltíð. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Björg Jóna Birgisdóttir fyrrverandi námsstjóri í Listaháskólanum. Hún skrifaði jólasögu fyrir börn sem heitir Jólahúsið hennar Sonju, en bókin er nýkomin út. Hún sagði okkur frá bókinni og svo auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Saga Reykjavíkur í 1000 ár e. Guðjón Friðriksson, Eggert Þór Bernharðsson og Þorleifur Óskarsson. Laugavegur e. Önnu Dröfn Ágústsdóttur og Guðna Valberg Kristín Þorkelsdóttir e. Bryndísi Björgvinsdóttur og Birnu Geirfinnsdóttur Flórulykillinn e. Ágúst H. Bjarnason Sigurverkið e. Arnald Indriðason Vorblót e. Katrínu Jakobsdóttur Karítas án titils e. Kristínu Mörju Baldursdóttur Dimmalimm e. Mugg Kvennaklósettið e. Marilyn French Híbýli vindanna e. Böðvar Guðmundsson Bókin hans pabba (e. Birgi Ísleif Gunnarsson, kom aldrei út)

Tónlist í þættinum: Bjartsýni / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Haustvísa / Anna Pálína Árnadóttir (Erna Tauro-Aðalsteinn Ásberg) Söngur Dimmalimmar / Gunnar Gunnarsson (Atli Heimir Sveinsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.