Höfundurinn Svante Svendsen er sköpunarverk danska rithöfundarins Benny Andersen en nú á dögunum kom út þýðing á geysivinsælli bók og plötu um skáldið sem nefnist Vísur Svantes, en þar er saga skáldsins sögð og vísum hans gerð skil í riti og söng. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi þýðir, spilar og stendur að útgáfunni, hann verður gestur Víðsjár í dag.
Fullkomnun eftir Vincenzo Latronico kom út á Ítaliu 2022 og hefur farið sigurför um heiminn. Í bókinni segir Latronico sögu ungs pars sem eyðir mikilli orku í að gera umhverfi sitt fallegt og deila þeirri fegurð á samfélagsmiðlum. Þau vinna á netinu og hafa komið sér fyrir í Berlín þar sem þau leita hamingjunnar í rótlausum heimi sem veltur fyrst og síðast á lögmálum markaðarins. Við hér í Víðsjá höfum verið með hugann við þessa bók og munum í næstu viku fjalla um hana með ítarlegum hætti. En Fullkomnun er óður til annarar skáldsögu sem kom út árið 1965 í Frakklandi: Hlutirnir eftir George Perec. Við kynnum okkur hana í þætti dagsins.
Sölva Halldórsson rýnir að þessu sinni í bókina Dagar löngunar eftir hinn indverska Nirmal Verma í þýðingu Gyrðis Elíassonar.