Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, í Ásmundarsal mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar, hversdagslegir fundnir hlutir, olíukrítarteikningar og stækkuð fingraför. Sameiginlegur kjarni verkanna felst í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilja eftir sig ummerki. Við hittum Guðjón í Ásmundarsal í þætti dagsins.
Stórverkið ANOK eftir Högna Egilsson verður frumflutt í Hallgrímskirkju á föstudaginn. Verkið er samið fyrir kór, orgel og slagverk og sækir innblástur í apókrýf rit frumkristni, meðal annars textann Þrumuna: Fullkomnum hug og Tómasarguðspjall. Högni verður gestur okkar í hljóðstofu.
Íslenski dansflokkurinn frumsýndi síðastliðinn föstudag verkið Straum, sem samanstendur af fjórum verkum eftir ólíka höfunda. Trausti Ólafsson rýnir í flutninginn.