„Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir. Að elta draumana og tilfinningarnar. Láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur sem gaf nýverið út bókina Dauðadæmd. Í bókinni rekur Guðný sögu Oddnýjar Jónsdóttur, vinnukonu úr Skagafirði sem var 1775 dæmd fyrir dulsmál. Refsingin var að hún skyldi hálshöggvast og höfuðið sett á stjaka. „Þegar ég opnaði dómabækurnar og dró upp allan þennan vitnisburð og mynd af sveitinni, þá varð þetta bara svo mögnuð saga, og þetta var svo magnað óréttlæti.“ Guðný verður gestur okkar í Víðsjá dagsins.
Og við heyrum fleiri kvennasögur því Natasha S. fjallar um þungbæra reynslu sína af heilbrigðiskerfinu hér á landi. Það var ekki fyrr en hún ferðaðist aftur til landsins sem hún flúði, Rússlands, sem á hana var hlustað og áralangir verkir hurfu. Og að lokum fjallar Gréta Sigríður Einarsdóttir um fyrstu skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur, Varkár, sem byggir á reynslu höfundar af sárri þrá eftir barni.