Víðsjá
Avsnitt

Úkraínsk íkon, þjóðarópera og nýjar plötuútgáfur

Dela

Listasafn Íslands opnaði um liðna helgi sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Þar gefur að líta fjölda íkona frá 12 og fram á 19 öld, úr safneign Listasafns Úkraínu í Kænugarði. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi einstöku listaverk eru sýnd utan heimalandsins. Við heyrum í Ingibjörgu Jóhannsdóttur safnstjóra í þætti dagsins

Nýstofnuð þjóðarópera hóf formlega göngu sína á dögunum í Hofi á Akureyri og heldur tónlega víðsvegar um landið á næstu vikum. Trausti Ólafsson, leikhúsrýnir Víðsjár var staddur fyrir norðan um liðna helgi og mætti á þennan merkisviðburð

Það er heilmikil vinna sem fellst í því að vekja athygli á sér sem tónlistarmaður í umhverfi sem gerir miklar kröfur til markaðs og kynningarmála, þar sem pönkarar jafnt og popparar þurfa að tileinka sér tungumál viðskiptaheimsins. Hugsjónin er ávallt drifkraftur tónlistarútgáfu en það getur verið gagnlegt að hafa ákveðinn merkimiða - eða label – sem sameinar stefnur, hópa, eða tíðaranda. Tvær nýjar plötuútgáfur skutu upp kollinum í sumar, plata og blaðran. Víðsjá kynnir sér starfsemi þeirra í þættinum.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.