Ætti Þjóðminjasafnið að kaupa úlpu sem Ágústa Johnson reynir að selja á facebook? Af hverju gengur illa að varðveita torfbæi? Eru söfn í nægu samtali við samtímann? Þetta eru nokkrar þeirra fjölmörgu spurninga sem dúkka upp við lestur bókarinnar Hugvekjur um söfn og samfélag eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði. Þar tekur hann saman skrif frá þrjátíu ára ferli, en í bókinni eru ekki eingöngu fræðilegar pælingar heldur einnig persónuleg afstaða þar sem höfundur teflir fram gagnrýnum viðhorfum sem fara um víðan völl. Greinarnar snerta á menntun, eignarhaldi, inngildingu, ferðaþjónustu og sjálfbærni svo eitthvað sé nefnt. Við ræðum við Sigurjón Baldur i þætti dagsins.
Við kynnum okkur einnig mál írska rithöfundarins Sally Rooney, en bækur hennar hafa verið teknar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við Palestine Action. Og Gauti Kristmannsson rýnir í Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson.