Lífskán nefnist ljóðsaga úr smiðju Karólínu Rósar Ólafsdóttur en hún fjallar um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Sjúkdómsgreind kona, kaldur læknir og hömlulaus þýðandi eiga þar stórleik þar sem þau reyna að greiða úr þéttum vef tungumála og tákna mismunandi kerfa. Karólína verður gestur okkar í þætti dagsins.
Sölvi Halldórsson rýnir í Brotnar línur eftir Védísi Evu Guðmundsdóttur.
Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Djöfla eftir Lars Norén í Borgarleikhúsinu.