Víðsjá
Avsnitt

North Atlantic Brass, Örvar Smárason, Reykjavík Dance Festival/rýni

Tetris hakakrossar og gúrkulaga öskubakki frá landssambandi bænda eru meðal yrkisefna Örvars Smárasonar í nýjasta skáldriti hans, Það sem við sjáum þegar við lokum augunum, sem kom út hjá Angústúru forlagi á dögunum. Sagan fjallar um þrjár ólíkar persónur: forfallinn safnara, verðlaunahöfund sem býr til hjartnæm meme á facebook og myndbandsgreinanda hjá Interpol í veikindaleyfi - en sögur þeirra fléttast saman á óvæntan hátt. Örvar segir frá innblæstrinum og áhrifum stanslauss skynræns áreitis á hugann í þættinum.

Einum helsta viðburði haustsins í menningarlífi borgarinnar, Reykjavík Dance Festival, lauk fyrir rúmri viku. Karl Ágúst Þorbergsson sótti þar marga viðburði og flytur okkur sína upplifun.

Þeir Erling Eydal hornleikari og Gunnar Kristinn Óskarsson trompetleikari hófu sitt tónlistarnám sex ára og voru báðir í skólahljómsveit Austurbæjarskóla. Í dag er Erling fastráðinn hjá Sinfóníuhljómsveit danska ríkisútvarpsins og Gunnar er á reynslutíma sem leiðari trompetdeildar Sinfóníuhljómsveitarinnar í Árósum. Þeir ferðast þessa dagana um landið með brasskvintettinum North Atlantic Brass, sem var stofnaður af þeim félögum í Kaupmannahöfn árið 2019 og hefur síðan komið fram víða um heim. Þeir koma fram á Ísafirði í kvöld, á Akureyri annað kvöld, og í Hörpu á sunnudag. Halla tók á móti þeim í morgun.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.