Í Slökkvistöðinni í Gufunesi opnuðu Theresa Himmer og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir nýverið sýninguna Endalok svefns. Sýningin hefur verið tvö ár í vinnslu og er unnin sérstaklega inn í sýningarýmið sem starfrækt hefur verið undanfarin ár með sérstaka áherslu á verk eftir áhugafólk um arkitekúr og rýmislist. Þær Ingunn Fjóla og Theresa sýna þarna verk í ólíkum miðlum en byggja þau á sameiginlegu rannsóknarferli á áhrifum stafræns veruleika og neysluhyggju á menningu okkar. Við heimsækjum Slökkvistöðina og ræðum við Ingunni Fjólu.
Einnig hugum við að Atómstöðinni sem verður tekin fyrir á morgun í bókaklúbbi þáttar: Aldrei las ég Laxnes. Og Fríða Þorkelsdóttir rýnir í Lesbíur óskast eftir Elísabetu Thoroddsen.