Víðsjá
Avsnitt

Jes Einar Þorsteinsson, Kartafla jólabók Blekfjelagsins, Haukur Þorgeirsson

Hönnunarsafnið opnaði fyrr í mánuðinum sýningu á verkum arkitektsins Jes Einars Þorsteinssonar. Jes Einar nam arkitektúr í París á árunum 1954–1967 og það er óhætt að segja að höfundareinkenni hans séu sterk. Meðal þekktari verka hans eru Skeiðalaug og heilsugæslan og tónlistarskólinn á Seltjarnarnesi. Við ræðum við sýningarstjórana Katrínu Heiðar og Hauk Hafliða Nínuson í þætti dagsins.

Haukur Þorgeirsson, málfræðingur og pistlahöfundur, heldur áfram að fjalla um skyldmenni íslenskunnar og hugar nú að vorri tungu og ensku.

Kartöfla nefnist Jólabók Blekfjelagsins í ár og er hún sú fimmtánda í langri röð jólabóka félagsins. Blekfjelagið er nemendafélag meistaranema í ritlist við HÍ og hefur undanfarið gefið út jólabók á hverju ári þar sem birtast á annan tug smásagna sem mega aðeins vera 100 orð, og stundum minna. Við fáum heimsókn frá formanni félagsins Sólveigu Auðar Hauksdóttur og ritstjóra jólabókarinnar Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur í þættinum.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.