Hjónin Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv hafa lagt margt á vogaskálar íslensks tónlistarlífs í getnum tíðina en hafa ekki áður gert heila plötu í sameiningu. Skífan Layers, sem inniheldur blöndu af eistneskum, íslenskum, skandinavískum og enskum þjóðlögum, kom út á dögunum og Páll og Tui mættu í hljóðstofu til að segja frá samstarfinu, ferlinu og hvernig rætur þeirra úr pönki og kórastarfi birtast í tónlistinni.
"Líf mitt var eins og að spila míkadó þar sem hver prjónninn var veiddur á fætur öðrum án þess að hrúgan hryndi." Stendur aftan á skáldsögunni Míkadó sem rithöfundurinn Gerður Kristný var að senda frá sér en í verkinu fáum við að kynnast fjölskyldu á erfiðum tímamótum í gegnum sjónarhorn 11 ára stúlku. Gerður Kristný kemur í hljóðstofu og segir frá bókinni.
Púðlusafnið er nýtt sviðsverk sem sýnt er á fjölum Tjarnarbíós. Verkið er samið og flutt af systrunum Olgu Sonju og Salóme Sól, og er það innblásið af bókinni Night Bitch eftir Rachel Yoder. Sjöfn Asare gerði sér ferð á Púðlusafnið og segir frá í þættinum.