Víðsjá
Avsnitt

Fullkomnun (frh.), Hrafnkell Sigurðsson og Hjá Leyningsvötnum/rýni

Dela

Þátturinn í gær var lagður undir eina bók: Fullkomnun eftir Vincenzo Latronico í þýðingu Þóru Arnórsdóttur. Fullkomnun kom út á Ítaliu 2022 og hefur farið sigurför um heiminn síðan. Í bókinni segir Latronico sögu ungs pars sem eyðir mikilli orku í að gera umhverfi sitt fallegt og deila þeirri fegurð á samfélagsmiðlum. Þau Halla og Tómas fengu til sín þrjá góða gesti í gær til að ræða þessar bækur en halla ræddi einnig við þýðandann, Þóru Arnórsdóttur. Heyrum það samtal í þættinum.

Nýverið opnaði á Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á verkum Hrafnkels Sigurðssonar. Sýningin nefnist X og vísar þar í ákveðinn skurðpunkt á ferli Hrafnkels og sömuleiðis í rómverska tölustafinn tíu, en sýningin er sú tíunda í röð árlegra yfirlitssýninga sem haldnar hafa verið í Vestursal Kjarvalsstaða. Á sýningunni sjást lykilverk úr ferli Hrafnkels í bland við ný, aðallega ljósmyndir þar sem mannlegt inngrip í náttúruna er meginstefið, en Hrafnkell segist vinna meira fyrir framan myndavélina en fyrir aftan hana.

Þá rýnir Gauti Kristmansson í nýja ljóðabók Hannesar Péturssonar, Hjá Leyningsvötnum.

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör RÚV. Innehållet i podden är skapat av RÚV och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.