Vörumerki
Avsnitt

S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki

Dela

Þessi þáttur fangar kjarnann í því sem Vörumerki snýst um: að sjá vandamál, fá hugmynd að lausn...og framkvæma hana.

Ásthildur Gunnlaugsdóttir var aðeins 26 ára þegar hún fékk hugmynd að lausn við vandamáli sem hún hafði sjálf glímt við í starfi sínu sem förðunarfræðingur. Úr þeirri hugmynd varð Mist & Co., íslenskt vörumerki sem gerir þrif á förðunarburstum einfaldari, fljótlegri og fallegri.

Í þættinum ræðum við meðal annars:

- Framleiðsluferlið og þær óvæntu áskoranir sem koma upp þegar hugmynd á að verða að alvöru vöru - Umbúðirnar og hversu stóru hlutverk þær gegna í upplifuninni af vörumerkinu - Hvernig kokteilskóli fjármagnaði fyrstu framleiðsluna - Fyrsta fundinn með Hagkaup, þar sem Ásthildur mætti með frumgerð sem var, að hennar eigin sögn, „basically blað“ - Samfélagsmiðla, frumkvöðlalífið og uppbyggingu vörumerkis frá grunni, frá hugmynd og konsepti yfir í sölu og dreifingu. - Spennandi hluti framundan hjá Mist & Co. 

Mist & Co. er þó ekki eina fyrirtækið sem Ásthildur hefur komið á laggirnar. Hún og kærasti hennar stofnuðu einnig Kokteilskólann og Reykjavík Cocktails, samhliða því að eignast tvö börn á síðustu árum.

Þetta er þáttur fyrir alla sem vantar innblástur til að byrja, framkvæma og halda áfram, fullur af raunverulegum ráðum og innsýn í allt það sem gerist á bak við tjöldin þegar vörumerki verður til.

Og já… þú vilt líklega fara að þrífa förðunarburstana þína eftir þennan þátt. 🫣🦠 -

💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson

📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

 

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Margrét Björk Jónsdóttir. Innehållet i podden är skapat av Margrét Björk Jónsdóttir och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.