Vörumerki
Avsnitt

S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið

Dela

Andreas Aðalsteinsson hjá auglýsingastofunni Sahara veit sannarlega eitt og annað um markaðssetningu, ekki síst þegar kemur að samfélagsmiðlum. Hann fer yfir það sem virkar í dag: hvað grípur athygli, hvað skapar tengingu og hvað hjálpar vörumerkjum að vaxa.

Umræðuefni þáttarins eru meðal annars:

  • Er „branding vs. sala“ röng spurning?
  • Af hverju segir fylgjendatala ekki alla söguna?
  • Hvaða íslensku áhrifavaldar standa sig best?
  • Hvernig nær maður athygli fólks á fyrstu 3 sekúndunum?
  • Hvað gerir content áhrifaríkt?
  • Skiptir rétta tilfinningin meira máli en „súpa dagsins“?

Andreas hjálpar okkur að setja hlutina í samhengi þegar kemur að skilaboðum, samfélagsmiðlum, auglýsingum og vexti.

Þetta er þáttur fyrir frumkvöðla, fyrirtækjaeigendur, markaðsfólk og alla sem hafa einhvern tímann hugsað:

„Við þurfum að vera virkari á samfélagsmiðlum… en hvað eigum við eiginlega að gera?“

--

💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson

📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Margrét Björk Jónsdóttir. Innehållet i podden är skapat av Margrét Björk Jónsdóttir och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.