Vörumerki
Avsnitt

S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár

Dela

Sara Lind Pálsdóttir var aðeins 21 árs þegar hún opnaði tískuvöruverslunina Júník. Þrátt fyrir enga reynslu úr viðskiptalífinu, en með brennandi áhuga á tísku og fatnaði, sá hún gat á markaðnum og ákvað að stökkva í djúpu laugina.

15 árum síðar er Júník ein þekktasta fataverslun landsins og Sara sjálf löngu orðin órjúfanlegur hluti af vörumerkinu.

Í þættinum fer Sara yfir ótrúlega sögu Júník: fyrstu árin, LA-ferðirnar, djammkjólana, útvarpsauglýsinguna sem allir þekkja, samfélagsmiðlana, áhrifavalda, sumartískuna og margt fleira.

Við ræðum líka hvernig það hefur verið að vera andlit vörumerkis í 15 ár, vinnuna á bak við tjöldin, mörkin á milli vinnu og einkalífs, kjaftasögurnar, nafnlausar Facebook-færslur og hvernig hún ákvað að taka á þeim, auk alvarlegra veikinda sem settu lífið, vinnuna og forgangsröðunina í nýtt samhengi.

Einlægt, skemmtilegt og djúsí spjall við ofurkonuna Söru í Júník.

--

💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson

📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

Podden och tillhörande omslagsbild på den här sidan tillhör Margrét Björk Jónsdóttir. Innehållet i podden är skapat av Margrét Björk Jónsdóttir och inte av, eller tillsammans med, Poddtoppen.